Beint í efni
Mínar síður

Verslun/Vítamín og bætiefni/
Solaray Magnesium Citrate 400mg 90 hylki





Solaray Magnesium Citrate 400mg 90 hylki

00346301

Product information



Description

Hefur töluvert losandi áhrif í ristli svo best er að byrja á litlum skammti og auka hann smátt og smátt eftir þörfum. Gagnast oft mjög vel við sinadrætti, fótaóeirð og hægðatregðu sem og að hjálpa fólki að sofa betur vegna tauga- og vöðvaslakandi áhrifa. Getur einnig létt á höfuðverk og tíðaverkjum.

Magnesíum er lífsnauðsynlegt steinefni sem kemur víða við sögu í líkamanum. Það skiptir sköpum fyrir bæði vöðva og taugaslökun. Beinin þurfa nægilegt magn til að myndast og starfa rétt. Magnesíum er einnig nauðsynlegt fyrir hjarta og æðakerfi, alla orkuvinnslu í líkamanum og blóðsykursjafnvægi. Það er samverkandi þáttur í yfir 300 efnahvörfum í líkamanum svo það liggur ljóst fyrir að líkaminn getur ekki án magnesíums verið og því mikilvægt að fá nóg á hverjum degi. Án glútens.