Beint í efni
Mínar síður

Kaupskilmálar Rima Apóteks

1. Skilmálar
Þessir skilmálar gilda um kaup á vöru eða þjónustu hjá Rima Apóteki ehf.
Kaupandi samþykkir skilmálana við lok hverrar afgreiðslu. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og tryggjum við okkar viðskiptavinum, örugg viðskipti á netinu.

2. Skilgreiningar
Seljandi er Rima Apótek ehf., kt. 560996-2099. Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikningi. Kaupandi skal vera a.m.k. 18 ára.

3. Skilaréttur
Rima Apótek skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt.

Almennur skilafrestur á vörum er 30 dagar. Ef meir en 30 dagar eru liðnir frá kaupum á vöru er ekki boðið upp á endurgreiðslu eða vöruskipti.

Aðeins er tekið við vörum í órofnum umbúðum og í sama ásigkomulagi og þær voru við afhendingu. Lyfjum og lausasölulyfjum er ekki unnt að skila né fást þau endurgreidd nema um mistök af hálfu Rima Apóteks sé að ræða. Að öðru leyti gilda lög og reglur um afgreiðslu og afhendingu lyfja.

Ef til endurgreiðslu kemur innan 30 daga frá kaupum, mun Rima Apótek endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og þegar viðskiptin áttu sér stað - þ.e. með bakfærslu á kreditkorti eða innleggi á bankareikning viðskiptavinar ef um staðgreiðslu var að ræða.

Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Ef vara reynist gölluð eða vegna rangrar afgreiðslu greiðir Rima Apótek fyrir endursendingu.

4. Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru áður en gengið er frá greiðslu. 

Póstsendingar

Óski viðskiptavinur eftir að fá vöru senda með Póstinum má finna allar upplýsingar um verð og þjónustu á heimasíðu www.posturinn.is. Sé verslað fyrir meira en 9000 kr. fellur sendingargjald niður.

Heimsendingar með Dropp

Höfuðborgarsvæðið: 1.200 kr.

Afhending á næsta Dropp stað

Höfuðborgarsvæðið: 500 kr.
Landsbyggðin: 700 kr.
Ef verslað er fyrir meira en 9.000 kr. fellur sendingargjald niður.

5. Afhendingartími

Heimsendingar með Dropp
Pantanir á höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir kl. 12:00 virka daga er hægt að fá sendar heim samdægurs.  

  • Pantanir sem eru gerðar fyrir kl. 12:00 eru sendar heim samdægurs á milli kl. 17:00-22:00
  • Pantanir sem eru gerðar eftir kl. 12:00 eru sendar heim næsta dag milli kl. 17:00-22:00

Dropp sendir SMS á farsímanúmer sem skráð er í pöntunarferlinu þegar pöntun er tilbúin til afhendingar. 


Sendingar á Dropp staði
Höfuðborgarsvæðið

  • Pantanir sem eru gerðar fyrir kl. 12:00 virka daga eru tilbúnar til afhendingar sama dag eftir kl. 17:00. 
  • Pantanir sem eru gerðar eftir kl. 12:00 virka daga eru tilbúnar til afhendingar næsta dag eftir kl. 17:00.

Landsbyggðin

Afgreiðslutími pantana er 1 - 2 virkir dagar

Dropp sendir SMS á farsímanúmer sem skráð er í pöntunarferlinu þegar pöntun er tilbúin til afhendingar.

Sótt í apótek
Pantanir eru afgreiddar á opnunartíma apóteksins alla virka daga frá 09 – 18. Pantanir sem sóttar eru í apótekið eru almennt tilbúnar til afgreiðslu á 15 mínútum. Pöntun þarf að berast í tæka tíð fyrir lokun.

6. Verð og verðbreytingar
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Rima Apótek áskilur sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða villu í skráningu. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturvirkar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

Ef vara sem pöntuð hefur verið reynist ekki til á lager, upplýsum við viðskiptavini okkar um það og bjóðum að senda vöruna þegar hún verður fáanleg að nýju. Ef fyrirséð er að pöntuð vara verður ekki til á lager á næstunni (innan 30 daga) mun Rima Apótek endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla þegar farið fram.

7. Persónuvernd
Seljandi meðhöndlar allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til þeirra viðskipta sem þær eru gefnar fyrir. Að öðru leyti vísast til skilmála um meðferð persónuupplýsinga og persónuvernd á heimasíðu Rima Apóteks.

8. Öryggi
Rima Apótek tryggir greiðsluöryggi eins og frekast er kostur á hverjum tíma. Allar greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd.

9. Greiðslumöguleikar
Í netverslun Rima Apóteks er boðið upp á að greiða með öllum helstu kredit- og debetkortum. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd.

10. Varnarþing
Þessir skilmálar samræmast íslenskum lögum. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

11. Um Rima Apótek
Rima Apótek ehf
Langarima 21
112 Reykjavík

Sími: 5775300
Netfang: rimaapotek@rimaapotek.is
VSK nr: 103750
Kt: 560996-2099